Um Staðlavita

Frá staðli að lifandi stjórnunarkerfi

Staðall er ekki aðeins skjal til yfirlestrar eða gátlisti fyrir úttekt. Fyrirtæki þurfa að yfirfæra kröfur staðalsins í skýra ábyrgð, verklag, ákvarðanir, stýringar og gögn sem sýna fram á að kerfið sé í virkri notkun.

Staðlaviti styður fyrirtæki í þessari vegferð frá vali og túlkun á viðeigandi staðli til innleiðingar, eftirlits og stöðugra umbóta. Með því að tengja saman kröfur staðalsins, stjórnunarkerfið og daglegan rekstur verður auðveldara að sjá hvað þarf að gera, hver ber ábyrgð, hvaða gögnum þarf að safna og hvar áhættur og frábrigði kunna að leynast.

Markmiðið er ekki að koma upp kerfi sem virkar aðeins þegar úttekt stendur yfir. Markmiðið er lifandi stjórnunarkerfi sem styður við ákvarðanatöku, skapar sýnileika, heldur utan um ábyrgð og hjálpar fyrirtækinu að viðhalda gæðum og öryggi og stuðla að skilvirkni eins og við á hverju sinni.

Stjórnunarkerfið í Staðlavita

Stjórnunarkerfi

Umfang og skipulag, viðmið úr kröfukafla staðalsins, skjöl og ferlar, hlutverk og ábyrgð. Ef þú ert með skjöl yfir þitt stjórnunarkerfi getur þú hlaðið þeim upp eða tengt skjalageymslu og Staðlaviti les skjölin, tengir þau við viðmið og sýnir þér hvað vantar uppá.

Mat og úttektir

Mat gagnvart völdum viðmiðum, gap-greiningar, innri úttektir og beiðnir um gögn. Matið greinir á milli þess sem er skjalfest, þess sem virðist framkvæmt og þess sem er staðfest með gögnum.

Vöktun

Er starfsemin framkvæmd eins og ákveðið var? Vöktunarreglur byggja á gögnum úr tengdum rekstrarkerfum, aðgangsskrám, afritakeyrslum, atvikaskrám og senda viðvaranir þegar sönnunargögn vantar eða eru orðin úrelt.

Úrbætur

Frávik, veikleikar og aðgerðir í sama vinnusvæði, tafarlausar leiðréttingar, úrbótaaðgerðir, rótargreining og sannprófun. Hvert mál sýnir uppruna sinn og tengd viðmið, skjöl og sönnunargögn.

Viðbót við Staðlavita

Regluviti

Regluviti hjálpar fyrirtækjum að skilja regluverkið sem snertir starfsemi þeirra.

Með Regluvita geta notendur leitað í íslenskum réttarheimildum og fengið skýr svör á mannamáli um lög, reglugerðir, reglur og önnur atriði sem kunna að skipta máli í rekstri fyrirtækja.

Kerfið nýtist við að fá almenna yfirsýn yfir reglur og skyldur, undirbúa innri vinnu, skoða kröfur í tengslum við verklag, gæðamál og staðla, og greina hvort mál kalli á nánari skoðun.

Viltu sjá stjórnunarkerfið í notkun?

Við hjá Staðlavita komum gjarnan til þín og kynnum lausnina fyrir teyminu, eða hittumst á fjarfundi ef það hentar betur.

Á kynningunni sýnum við hvernig Staðlaviti virkar í framkvæmd með dæmum úr ISO/IEC 27001. Við förum meðal annars yfir hvernig hægt er að finna réttu staðlana, vinna með kröfur þeirra, bera saman eigin skjöl við staðla og fylgjast með því að kröfur séu uppfylltar til lengri tíma.